Fullkomið hleypt egg hjá Gordon Ramsay

Stjörnukokkurinn Gordon Ramsay fullkomnar hleypt egg.
Stjörnukokkurinn Gordon Ramsay fullkomnar hleypt egg. Samsett mynd

Allir vita að það er ákveðin kúnst að útbúa hleypt egg, bæði hvað varðar áferð, útlit og að eggjarauðan flæði fallega út þegar skorið er á eggið. Að horfa á stjörnukokkinn Gordon Ramsay að fullkomna hleypt egg er hreinn unaður. Ramsay deildi hinni fullkomnu aðferð til að útbúa hleypt egg á Instagram-reikningnum Masterclass sem vert er að horfa á og njóta. Síðan er vert að leika þetta eftir og athuga hvort aðferðin hans Ramsay dugar.

Hleypt egg

  • 1 egg (best að vera með lífrænt egg frá landsnámshænum sem ganga lausar)
  • vatn
  • edik
  • salt

Aðferð:

  1. Sjóðið fyrst vatn.
  2. Saltið örlítið og bæt ðan við ediki eftir smekk. Edikið hjálpar til við að styrkja eggjahvítuna og klæðir það hvítuna utan um eggjarauðuna.
  3. Hrærið varlega í vatninu bara þangað til þið fáið góða hreyfingu á vatnið.
  4. Tak eggið og brjót það mjög varlega í litla glerskál. Glerskálin gerir það að verkum að auðvelt er að losa eggið rólega ofan í pottinn í sjóðandi vatnið.
  5. Takið glerskálina með egginu í og setjið eggið rólega ofan í sjóðandi vatnið.
  6. Það sem gerist síðan í framhaldinu er að eggjahvítan byrjar að umvefjast utan um eggjarauðuna og úr verður þetta fullkomna hleypta egg sem gerir það að verkum að það lítur næstum út eins og mozzarellakúla.
  7. Haldið vatninu enn á hreyfingu með suðu, passið að hafa milda og mjúka suðu á egginu og snúið síðan egginu á hvolf.
  8. Veiðið eggið varlega upp og setjið á eldhúspappír og þerrið örlítið.
  9. Lyftið síðan eldhúspappírnum og setjið eggið varlega í skeið og setjið ofan á t.d. ristað brauð eða english muffins sem er smurt kræsingum sem hugur ykkar girnist.
  10. Njótið, en hreinn unaður er að fá sér hleypt egg.
View this post on Instagram

A post shared by MasterClass (@masterclass)

Hið fullkomna hleypta egg.
Hið fullkomna hleypta egg. Skjátskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert