Allt önnur 27 kílóum léttari

Kathy Bates segir árangur sinn hafa tekið tíma.
Kathy Bates segir árangur sinn hafa tekið tíma. AFP

Óskarsverðlaunaleikkonan Kathy Bates hefur grennst töluvert á undaförnum árum. Bates er sögð hafa misst yfir 27 kíló en í viðtali við UsWeekly segir hún það hafa tekið sig tíma að komast á þann stað sem hún er á í dag. 

Bates forðast freistingar eins og skyndibita og gos en hún segir núvitund einnig hafa hjálpað sér með að borða minni skammta. 

„Núvitund, bara að vera meðvituð um hvenær ég á að ýta disknum frá mér,“ sagði Bates. Talar hún um að á ákveðnum tímapunkti þegar fólk er búið að fá nóg tali heilinn og maginn saman. „Trixið er að veita þessu athygli og ýta disknum frá sér.“

Bates segir fólk þurfi að búa yfir þolinmæði ef það ætlar að ná sama árangri enda tók breytingin nokkur ár. Hún er ekki hrifin af orðinu viljastyrkur en ákveðni kann hún betur við. Hún sér heldur ekki eftir því að hafa tekið sig á. 

„Ég hef aldrei verið við jafngóða heilsu,“ sagði Bates. „Mér líður eins og allt annarri manneskju. Ég get hreyft mig, Ég get gengið. Ég óska þess bara að ég hefði gert þetta fyrir mörgum árum.“

Kathy Bates hefur aldrei liðið betur.
Kathy Bates hefur aldrei liðið betur. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál