Framlengdi á afmælisdaginn

Gunnleifur Gunnleifsson er 43 ára dag og ákvað að framlengja …
Gunnleifur Gunnleifsson er 43 ára dag og ákvað að framlengja samning sinn í tilefni dagsins. mbl.is/Golli

Gunnleifur Vignir Gunnleifsson framlengdi í dag samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks en hann greindi sjálfur frá þessu á Twitter-síðu sinni í dag. Samningur hans átti að renna út í október 2018 en hann hefur nú framlengt hann um ár til viðbótar.

Gunnleifur kom til Breiðabliks frá FH árið 2012 og hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin ár. Hann varð 43 ára gamall í dag og á að baki 434 leiki á ferlinum. Þá á hann að baki 26 landsleiki fyrir íslenska landsliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert