„Gerum aldrei kröfu á sigur”

Eiður Smári Guðjohnsen aðstoðarþjálfari og Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari á …
Eiður Smári Guðjohnsen aðstoðarþjálfari og Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari á æfingu í Kaplakrika í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segir að þjálfaraliðið geri aldrei kröfu um sigur en að vissulega trúi það því að mögulegt sé að ná í þrjú stig í næsta leik, sem er gegn Armeníu.

Á Teams-fjarfundi með blaðamönnum í gær var Arnar Þór spurður hvort krafa væri gerð um sex úr verkefninu sem fram undan er; tveimur heimaleikjum í undankeppni HM 2022, fyrst gegn Armeníu á föstudag og svo gegn Liechtenstein á mánudag.

„Nei, við gerum aldrei kröfu á sigur. Það er þetta týpíska leiðinlega svar frá þjálfurum. Það er alltaf ákveðið verkefni sem við stöndum fyrir og það er næsti leikur. Ég held að ég hafi aldrei heyrt þjálfara tala um leikinn sem er á eftir næsta leik,” sagði hann á fundinum.

Í næsta leik væri prýðismöguleiki á að taka þrjú stig. „Við trúum því að við getum tekið þrjú stig út úr næsta leik og við einbeitum okkur að því núna. Stigin og árangurinn kemur í kjölfarið á að við vinnum í og framkvæmum þá hluti sem við erum góðir í.

Strákarnir eru allir meðvitaðir um að með góðum leik, góðum liðsanda og mikilli baráttu getum við siglt inn stigum,“ bætti Arnar Þór við og benti á að liðið væri í umbreytingaferli. Í því væri þjálfaraliðið að leita að réttri blöndu leikmanna.

„Ég hef sagt það áður að á tímum sem þessum er árangurinn ekki alltaf mældur í sigrum. Árangurinn er mældur í þeim skrefum sem liðið tekur. Eins og ég hef oft sagt áður þá erum við líka að leita að réttu blöndunni.

Það sem var okkar styrkleiki árin á undan var að við áttum frábært lið sem spilaði mjög oft saman, tengdi mjög vel saman á milli hver annars og það er það sem við erum að leita að,“ sagði hann einnig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert