Ronaldo í sögubækurnar

Cristiano Ronaldo að skora úr vítaspyrnunni í gærkvöld.
Cristiano Ronaldo að skora úr vítaspyrnunni í gærkvöld. AFP

Cristiano Ronaldo skráði nafn sitt í sögubækur Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld þegar hann skaut Real Madrid áfram í undanúrslitin þegar hann skoraði í uppbótartíma úr vítaspyrnu gegn Juventus.

Þetta var 15. mark Ronaldos í Meistaradeildinni á leiktíðinni en hann hefur skorað í öllum 11 leikjum Madridarliðsins í Meistaradeildinni á þessu tímabili og það hefur engum öðrum leikmanni tekist. Hann er markahæsti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar með 119 mörk.

Portúgalinn varð þriðji leikmaðurinn til að ná að spila 150 leiki í Meistaradeildinni en markvörðurinn Iker Casillas á flesta leiki í Meistaradeildinni eða 167 og næstur kemur Xavi Hernandez með 151 leik.

Markið sem Ronaldo skoraði í gær var hans 10 á móti Juventus í Meistaradeildinni en hann skoraði fjögur mörk í undanúrslitaleikjunum gegn Ítalíumeisturunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert