Emil Pálsson sá rautt í tapi

Emil Pálsson fékk tvö gul spjöld í dag.
Emil Pálsson fékk tvö gul spjöld í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Emil Pálsson var í byrjunarliði Sandefjord sem varð að sætta sig við 2:0-tap fyrir Haugesund á heimavelli í efstu deild Noregs í fótbolta í dag. Emil lék fram að 54. mínútu en þá fékk hann sitt annað gula spjald og þar með rautt. Ingvar Jónsson var allan tímann á varamannabekknum.

Tímabilið hjá Sandefjord hefur verið hörmung, því liðið er aðeins með fimm stig eftir 13 leiki og í botnsætinu. 

Aron Sigurðarson kom inn á sem varamaður á 59. mínútu fyrir Start sem gerði 1:1 jafntefli við Strömsgodset á heimavelli. Guðmundur Andri Tryggvason var allan tímann á varamannabekk Start en Kristján Flóki Finnbogason var í leikbanni. Start er í næstneðsta sæti með átta stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert