Real Madrid að bjóða í Willian og Courtois?

Belgíski markmaðurinn Thibaut Courtois er orðaður við Real Madrid í …
Belgíski markmaðurinn Thibaut Courtois er orðaður við Real Madrid í fjölmiðlum ytra. AFP

Samkvæmt enska dagblaðinu Dailymail hefur Real Madrid boðið Chelsea 100 miljónir punda fyrir knattspyrnumennina Willian og Thibaut Courtois.

Courtois hefur ekki haldið því leyndu að hann væri til í að flytjast aftur til spænsku höfuðborgarinnar þar sem börnin hans eiga heima. Hann á núna aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Chelsea.

Willian átti mjög góða heimsmeistarakeppni og bárust fréttir fyrr í mánuðinum um að Barcelona hafi gert tilboð í kappann en hætt við eftir að verðmiði Chelsea þótti of hár. Í staðinn fyrir Willian keypti Barcelona samlanda hans Malcom frá Bourdeaux.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert