Draumurinn alltaf að spila á Englandi

Christian Pulisic í leik með Dortmund.
Christian Pulisic í leik með Dortmund. AFP

Bandaríski knattspyrnumaðurinn Christian Pulisic er spenntur fyrir félagsskiptum sínum til enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea frá Dortmund í Þýskalandi. Chelsea gekk frá 57,6 milljóna punda kaupum á Pulisic á dögunum en lánaði hann aftur til Dortmund til loka leiktíðarinnar. 

Pulisic hlakkar til að spila í ensku úrvalsdeildinni en hann vill kveðja Dortmund með stæl. Liðið er með sex stiga forskot á Bayern München á toppi þýsku deildarinnar. 

„Það er gott að ég og annað fólk viti hvað ég geri eftir tímabilið, en ég er mjög spenntur að klára tímabilið með Dortmund. Vonandi skilur fólk ákvörðun mína og styður hana. Ég vil kveðja Dortmund almennilega,“ sagði Pulic í samtali við Sky Sports. 

„Ég er búinn að eiga fimm mögnuð ár í Þýskalandi en draumurinn var alltaf að spila í ensku úrvalsdeildinni. Ég get ekki beðið og ég held þetta sé hárrétt skref á hárréttum tíma fyrir mig,“ sagði hinn tvítugi Christian Pulisic. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert