Smit í enska landsliðshópnum

Phil Neville hughreystir Ellen White á HM í fyrra.
Phil Neville hughreystir Ellen White á HM í fyrra. AFP

Vináttulandsleik Englands og Þýskalands í knattspyrnu kvenna hefur verið aflýst eftir að kórónuveirusmit greindist hjá starfsliði enska liðsins. Leikurinn átti að fara fram fyrir luktum dyrum í Wiesbaden í Þýskalandi á þriðjudaginn.

Enski landsliðshópurinn kom saman á dögunum og átti að ferðast til Þýskalands í dag en fyrst voru allir leikmenn og starfsmenn skimaðir fyrir veirunni. Upp komst um smit hjá einum innan starfsliðsins og var í kjölfarið ákvað að hætta við leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert