Áfram í Hafnarfirðinum

Leikmenn FH fagna marki Vigdísar Eddu.
Leikmenn FH fagna marki Vigdísar Eddu. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnukonan Vigdís Edda Friðriksdóttir hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við FH. 

Vigdís Edda, sem er 24 ára gömul, lék 16 leiki í deild með nýliðum FH á síðasta tímabili sem komu á óvart og höfnuðu í sjötta sæti deildarinnar. 

Hún á að baki 50 leiki í efstu deild og smellpassaði inn í lið FH-inga í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert