Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson hafnaði í 7.-11. sæti á Parnu Bay-mótinu í golfi í Eistlandi í dag en mótið er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni.
Guðmundur lék lokahringinn í dag á þremur höggum undir pari og lék hringina þrjá á 211 höggum eða á samtals sjö höggum undir pari.
Guðmundur er í 26. sæti á stigalistanum en 5 efstu kylfingarnir í lok tímabilsins öðlast þátttökurétt í Áskorendamótaröðinni á næsta ári.
Þrír aðrir íslenskir kylfingar tóku þátt í mótinu en þeir Haraldur Franklín Magnús, Andri Þór Björnsson og Ólafur Björn Loftsson komust ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi.