Sló Rahm og Thomas við

Patrick Cantlay með sigurlaunin á ZOZO Championship.
Patrick Cantlay með sigurlaunin á ZOZO Championship. AFP

Ekki er heiglum hent að slá bæði Jon Rahm og Justin Thomas við á lokasprettinum á PGA-móti ef þessir kappar eru í baráttunni um sigurinn. 

Það tókst hins vegar Bandaríkjamanninum Patrick Cantlay að gera í gærkvöld þegar flestir bjuggust við því að Rahm eða Thomas færi með sigur af hólmi í Kaliforníu. 

Cantlay lék lokahringinn á 65 höggum og lauk leik á 23 höggum undir pari samtals en þeir Rahm og Thomas voru á 22 undir pari. Var þetta þriðji sigur Cantlay á PGA-mótaröðinni á ferlinum. 

Tiger Woods lauk leik á höggi undir pari og eins og staðan er núna er hann ekki líklegur til að gera rósir á Masters í nóvember. Mótinu sem hann sigraði eftirminnilega á í fyrra. En hann hefur þó tíma til að skerpa betur á leikæfingunni áður en farið verður til Augusta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert