Ramune Pekarskyte semur við Hauka

Ramune Pekarskyte er gengin til liðs við Hauka á nýjan …
Ramune Pekarskyte er gengin til liðs við Hauka á nýjan leik. mbl.is/Árni Sæberg

Handknattleikskonan Ramune Pekarskyte er gengin til liðs við Hauka og mun leika með liðinu í úrvalsdeild kvenna í handknattleik á næstu leiktíð en þetta kom fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér. 

Ramune kemur til Hauka frá Stjörnunni í Garðabæ en hún þekkir vel til í Hafnarfirðinum eftir að hafa spilað með Haukum á árunum 2003-2010 og 2015-2017. Hún hefur unnið allt sem hægt er að vinna með Haukum í gegnum tíðina. Ramune er orðin 37 ára gömul.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert