Lithái til Þórlákshafnar

Adomas Drungilas er orðinn leikmaður Þórs í Þorlákshöfn.
Adomas Drungilas er orðinn leikmaður Þórs í Þorlákshöfn. Ljósmynd/ABB

Körfuknattleiksdeild Þórs í Þorlákshöfn hefur gert tveggja ára samning við Litháan Adomas Drungilas. 

Drungilas er 203 sentímetrar og leikur sem framherji. Hann hefur leikið víða í Evrópu, síðast í Eistlandi með Tartu Ullikool. 

Þórsarar binda vonir við að Adomas muni þétta raðirnar í kringum körfuna og vera leiðtogi innan liðsins þar sem hann býr yfir töluverðri reynslu úr atvinnumennsku,“ segir í Hafnarfréttum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert