Umrót í efstu lögum Icelandair

Icelandair-þota á Keflavíkurvelli.
Icelandair-þota á Keflavíkurvelli. mbl.is/Árni Sæberg

Töluverðar breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi Icelandair í vetur, sem og skipulagi fyrirtækisins. Tveir framkvæmdastjórar og yfirlögfræðingur, allir með langa starfsreynslu, létu af störfum með stuttu millibili. 

Icelandair tilkynnti um nýtt skipurit í gær sem endurspeglar breytingar á skipulagi félagsins. Breytingarnar fela í sér að starf­seminni verði skipt í tvennt. Ann­ars veg­ar verður um að ræða alþjóðaflug­starf­semi og hins veg­ar fjár­fest­ing­ar. 

Fyrr um daginn var greint frá því að Svali Björgvinsson hefði sagt upp störfum sem fram­kvæmda­stjóri starfs­manna­sviðs Icelanda­ir en hann hafði starfað hjá félaginu í tæp níu ár.

Bogi Nils Boga­son verður fram­kvæmda­stjóri yfir fjár­málum Icelanda­ir Group, Elísa­bet Helga­dótt­ir yfir mannauðssviði, Jens Þórðar­son yfir rekstr­ar­sviði, Birna Ósk Ein­ars­dótt­ir yfir stefnu­mót­un­ar- og viðskiptaþró­un­ar­sviði og Guðmund­ur Óskars­son yfir sölu- og markaðssviði.

Auk þeirra eiga sæti í framkvæmdastjórn Björgólfur forstjóri, Magna Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels, Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, og Jens Bjarnason sem sinnir alþjóðasamskiptum. 

Þegar tilkynnt var um skipulagsbreytingarnar um miðjan nóvember kom í ljós að Birkir Hólm Guðna­son myndi láta af störf­um sem fram­kvæmda­stjóri flug­fé­lags­ins. Birk­ir Hólm var ráðinn fram­kvæmda­stjóri í maí 2008 en hafði þá starfað hjá Icelanda­ir um nokkurt skeið. 

Davíð Þorláksson lét af störfum sem yfirlögfræðingur hjá Icelandair í október en hann hafði  verið yf­ir­lög­fræðing­ur þar frá ár­inu 2009. Í hans stað kom Ari Guðjónsson sem hóf fyrst störf á lög­fræðisviði Icelanda­ir Group sam­hliða há­skóla­námi árið 2010.

Þá var Klara Íris Vig­fús­dótt­ir ráðin for­stöðumaður flug­freyja og flugþjóna og Guðrún Aðal­steins­dótt­ir tók við sem for­stöðumaður þjón­ustu­vara í byrjun vetrar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK