Að minnsta kosti tíu létust í árásum Rússa í Karkív-héraði í Úkraínu í dag.
Rússneskar hersveitir hófu óvænta árás á héraðið 10. maí sem hefur skilað þeim mestu landvinningum í Úkraínu í eitt og hálft ár.
Tvær árásir voru gerðar í dag þar sem fimm létust í hvorri.
Sú fyrri varð nærri Karkív-borg. Á meðal látinna eru átta ára barn og barnshafandi kona. 16 særðust í þeirri árás, á meðal þeirra voru lögreglumaður og sjúkraflutningamaður.
Stuttu síðar létust fimm og níu særðust í árás á bæina Novoosynove og Kivsharivka.