Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn vill handtaka Netanjahú

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. AFP

Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn (ICC) hefur farið fram á handtökuskipanir á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísraels, og Ya­hya Sinw­ar, leiðtoga Ham­as á Gasa.

CNN greinir frá því að krafan sé lögð fram á grundvelli stríðsglæpa og glæpa gegn mannkyninu vegna hryðjuverkanna 7. október og stríðsins sem hefur geisað á Gasa eftir það. 

Háttsettir leiðtogar Hamas

Karim Khan, sak­sókn­ari við dóm­stól­inn, óskaði þess að handtökuskipanir yrðu gefnar út og munu dómarar dómstólsins úrskurða um þær.

Einnig er farið fram á handtökuskipun á hendur háttsettra leiðtoga innan Hamas. Þeir eru ákærðir fyrir „útrýmingu, morð, gíslatöku, nauðgun og kynferðisofbeldi“.

Þetta er í fyrsta sinn sem ICC fer fram á handtökuskipun á hendur leiðtoga sem er svo náinn bandamaður Bandaríkjamanna, eins og Netanjahú er. 

Ísraelski forsætisráðherrann er þar líklega kominn í hóp manna á borð við Vladimír Pútín Rússlandsforseta, en ICC gaf út handtökuskipun á hendur honum eftir innrásina í Úkraínu. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert