Varð fyrir líkamsárás og ráni

Talsverðu fjármagni var rænt af viðkomandi sem gat þó gefið …
Talsverðu fjármagni var rænt af viðkomandi sem gat þó gefið greinagóða lýsingu af gerendum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einstaklingur kom inn á lögreglustöð 4 í Grafarholti og tilkynnti að hann hefði verið rændur og orðið fyrir líkamsárás á áttunda tímanum í kvöld.

Samkvæmt dagbók lögreglu var talsverðu fjármagni rænt af viðkomandi sem gat þó gefið greinargóða lýsingu af árásarmönnunum.

Akstur undir áhrifum

Í Garðabæ handtók lögregla ökumann vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis- og fíknefna.

Kom í ljós að viðkomandi var ekki með gild ökuréttindi og var hann fluttur á lögreglustöð í sýnatöku, en var látinn laus að henni lokinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert