Rannsókn miðar vel

Lögreglan vinnur enn að rannsókn málsins.
Lögreglan vinnur enn að rannsókn málsins. mbl.is/Sigurður Sigurgeirsson

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar enn andlát sem varð í sumarbústað í Kiðjubergi á Suðurlandi í lok apríl. 

Þetta segir Jón Gunnar Þór­halls­son, yf­ir­lög­regluþjónn á Sel­fossi, í samtali við mbl.is, og bætir við að rannsókninni miði vel. Það sé framgangur á hverjum degi. 

Gæsluvarðhald rennur út í næstu viku

Fjórir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald þann 20. apríl grunaðir um aðild að málinu. Gæsluvarðhaldi yfir tveimur þeirra var aflétt tveimur dögum seinna, en hinir tveir verða í gæsluvarðhaldi til 23. maí. 

Málið er rann­sakað sem mann­dráp og er nokkuð síðan lögreglan taldi sig vera komna með mynd á það sem gerðist.

Lögregla er þó enn að safna gögnum í tengslum við rannsókn málsins, að sögn Jóns Gunnars. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert