Bikarmeistararnir sannfærandi í fyrsta leik

Afturelding gerði góða ferð til Akureyrar.
Afturelding gerði góða ferð til Akureyrar. mbl.is/Óttar Geirsson

Afturelding gerði sér lítið fyrir og vann sannfærandi sigur á ríkjandi Íslandsmeisturum KA, 3:0, á útivelli í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í blaki í KA-heimilinu í kvöld.

Gestirnir úr Mosfellsbæ, sem eru ríkjandi bikarmeistarar, unnu fyrstu hrinuna eftir upphækkun, 26:24.

Eftir það voru Aftureldingarkonur sannfærandi og unnu tvær síðustu hrinurnar með sama hætti, 25:15, og leikinn örugglega í leiðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert