Hermann Nökkvi Gunnarsson
„Mig langar að sjá þetta land blómstra og mig langar að sjá hag okkar allra sem bestan,“ sagði Jón Gnarr, spurður um stefnu sína af ungum fundargesti, á borgarafundi Morgunblaðsins á Ísafirði í vikunni.
Líflegur borgarafundur Morgunblaðsins og mbl.is með Jóni Gnarr á mánudag var vel sóttur og fengu fundargestir að spyrja Jón spurninga um hin ýmsu málefni.
Hann viðurkenndi, spurður um stefnu sína, að stefnumál hans gætu verið pólitískt.
„Þá myndi ég fara að spyrja sjálfan mig „ættir þú ekki frekar að bjóða þig fram til Alþingis, ef að þú vilt standa fyrir miklum samfélagsbreytingum?““ sagði Jón og hló.
Hann sagði stefnu sína felast í því að hann myndi vera afl til að leiða saman sátt á milli fólks í landinu.
„Leiða saman ólíka hópa af fólki, sem sagt úr ólíkum jöðrum samfélagsins, til þess að sundrast ekki heldur vinna saman og ná enn þá meiri og betri árangri,“ sagði Jón Gnarr.
Fleiri borgarafundir eru fram undan með efstu frambjóðendum samkvæmt skoðanakönnunum Prósents, en 6. maí næstkomandi verður borgarafundur með Höllu Hrund Logadóttur á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum.
Þá verður borgarafundur með Baldri Þórhallssyni á Hótel Selfossi á Selfossi þann 14. maí og með Katrínu Jakobsdóttur á Græna hattinum á Akureyri þann 20. maí.