Hafa kortlagt 333.700 ferkílómetra

Árni Friðriksson í Hafnarfjarðarhöfn við höfuðstöð Hafrannsóknastofnunar. Átak hefur verið …
Árni Friðriksson í Hafnarfjarðarhöfn við höfuðstöð Hafrannsóknastofnunar. Átak hefur verið í kortlagningu hafsbotnsins undanfarin fimm ár. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun: Svanhildur Egilsdóttir

Í ágústmánuði tókst starfsmönnum Hafrannsóknastofnunar að kortleggja 8.964 ferkílómetra hafsvæði vestan við Látragrunn, á Dohrnbanka og á Selvogsbanka. Alls hefur nú tekist að kortleggja 333.700 ferkílómetra af hafsbotni í efnahagslögsögu Íslands af 754.000, eða 44,3% hennar.

Þetta er meðal þess er fram kemur í færslu á vef Hafrannsóknastofnunar um leiðangur rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar dagana 3. til 26. ágúst.

Þar segir að síðastliðin fimm ár hafi verið í gangi sérstakt átak um kortlagningu hafsbotnsins og að markmið átaksins sé að afla þekkingu sem getur verið grundvöllur frekari vísindarannsókna sem snúa að nýtingu, vernd og rannsóknir auðlinda í hafinu, á hafsbotni og undir hafsbotni. Í leiðangrinum var áherslan lögð á að kortleggja veiðislóðir á Vestfjarðamiðum í tengslum við veiðiálag síðastliðinna ára og togstöðva í verkefninu Stofnmælingu botnfiska.

Yfirlit fjölgeislamælinga Hafrannsóknastofnunar 2000 – 2022.
Yfirlit fjölgeislamælinga Hafrannsóknastofnunar 2000 – 2022. Mynd/Hafrannsóknastofnun
Staða kortlagningarinnar í júní 2020 þegar Árni Friðriksson hóf kortlagningu …
Staða kortlagningarinnar í júní 2020 þegar Árni Friðriksson hóf kortlagningu svæðis suðaustur af landinu. Mynd/Hafrannsóknastofnun

Plógför ísjaka á 600 metra dýpi

„Í fyrsta hluta leiðangursins var fyllt upp í þekju vestan við Látragrunn, þar sem jökulgarðurinn sem nefndur er „Brjálaði hryggurinn“ eða „kattarhryggurinn“ var mældur árið 2011, í tengslum við hrygningarstöðvar steinbíts á Látragrunni og mögulegum búsvæðum kórala,“ segir í færslunni.

Þá sáust plógför ísjaka á allt að 600 metra dýpi í kantinum við hrygginn, en undan kantinum er 14 kílómetra langur hryggur sem liggur frá norðvestur til suðausturs og rís allat að 60 metra af hafsbotni. „Hugsanlegar aurkeilur sjást í kantinum á austanverðu mælingasvæðinu. Á dýpsta svæðinu er botnharkan mjög lág sem gefur til kynna að þar hefur töluvert magn af mjúku seti sest til í lægðum.“

Svæðið vestan við Látragrunn var kortlagt.
Svæðið vestan við Látragrunn var kortlagt. Mynd/Hafrannsóknastofnun

Stórir hryggir

Sigldi Árni Friðriksson síðan til norðvestur á Dohrnbanka þar sem annar hluti leiðangursins fór fram. Mörkin voru dregin miðlínu efnahagslögsögunnar og fjölgeislamælingar frá mælingaárinu 2002. „Miklar sviptingar í ástandi sjávar gerðu yfirferð fjölgeislamælinga mjög erfiða. Vegna veðurs tókst ekki að ljúka mælingum á Dohrnbanka, en til stóð að tengja þær saman við eldri mælingar í Grænlandssundi.“

Botnlag á Dohrnbanka er sagt mjög fjölbreytt og sjást í fjölgeislagögnum meðal annars stórir hryggir og farvegir sem kvíslast niður á víðáttumikla sléttu. Þetta eru talin mikil ummerki um plógför ísjaka.

Hafsvæðið á Selvogsbanka var þriðji liður leiðangursins en þar var mælt frá eldri mælingum Hafrannsóknastofnunar að 100 metra jafndýpislínu. „Vestan við Surtsey var mælt yfir mikið af smáum sæfjöllum sem áður hafa verið mæld með eingeislamæli. Sæfjöllin fylgja tveimur sprungustefnum annarsvegar í NV-SA og hinsvegar í NA-SV. Við 100 metra jafndýpislínuna er mikið hraun eða klöpp sem sést einnig á sjókortum. Með fjölgeislagögnunum er hægt að kortleggja útbreiðslu þess með mun meiri nákvæmni. Botnharka sýndi að umhverfis hraunið og víða á mælingasvæðinu norðanverðu er mikið af mjúku seti.“

Yfirlit fjölgeislamælinga á Selvogsbanka í ágúst.
Yfirlit fjölgeislamælinga á Selvogsbanka í ágúst. Mynd/Hafrannsóknastofnun
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »