Thelma orðin tveggja barna móðir eftir draumafæðingu

Thelma Dögg Guðmundsen er orðin tveggja barna móðir.
Thelma Dögg Guðmundsen er orðin tveggja barna móðir. Ljósmynd/Aðsend

Áhrifavaldurinn Thelma Dögg Guðmundsen og kærasti hennar Kristinn Logi Sigmarsson eignuðust sitt annað barn saman þann 6. apríl síðastliðinn. Fyrir eiga þau soninn Jökul Loga sem kom í heiminn í janúar 2021. 

Thelma og Kristinn greindu frá gleðifregnunum í sameiginlegri færslu á Instagram þar sem þau deildu fallegri mynd af syninum. 

Eftir vægast sagt drauma fæðingu kom dásamlegi drengurinn okkar í heiminn þann 06.04.24. 18 merkur af fullkomnun og heldur hann þar að leiðandi vel í við bróður sinn. Við fjölskyldan erum yfir okkur ástfangin af honum og njótum nú þess að eyða tíma saman við fjögur,“ skrifuðu þau við færsluna. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert