Ariana Grande nýgift

Dalton Gomez og Ariana Grande sjást saman í tónlistarmyndbandinu Stuck …
Dalton Gomez og Ariana Grande sjást saman í tónlistarmyndbandinu Stuck with U. Instagram

Bandaríska poppstjarnan Ariana Grande gekk að eiga unnusta sinn, fasteignasalann Dalton Gomez, á heimili þeirra í Los Angeles á sunnudag. Þetta kemur fram í bandarískum fjölmiðlum í gær. 

Haft er eftir Grande í viðtali við People tímaritið að um fámenna og látlausa athöfn hafi verið að ræða en færri en 20 voru viðstaddir. Það var vefurinn TMZ sem fyrst greindi frá brúðkaupinu.

Ariana Grande.
Ariana Grande. AFP

Grande greindi frá trúlofun þeirra Gomez á Instagram í desember. Þar birti hún mynd af þeim og trúlofunarhringnum sem skartaði bæði perlu og demanti. Parið sást fyrst opinberlega saman í tónlistarmyndbandi lagsins Stuck with U en það tók hún upp ásamt Justin Bieber þegar kórónuveirufaraldurinn geisaði í Kaliforníu. Lagið er óður til para sem eyddu löngum stundum saman heima við þegar harðar sóttvarnareglur vegna Covid-19 voru í gildi. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson