Segja niðurstöðurnar ekki gagnast einstökum skólum

PISA 2022 | 6. desember 2023

Segja niðurstöðurnar ekki gagnast einstökum skólum

PISA-könnunin er ekki til þess fallin að veita áreiðanlegar upplýsingar um frammistöðu fámennra nemendahópa eins og þeirra sem tilheyra einstökum skólum.

Segja niðurstöðurnar ekki gagnast einstökum skólum

PISA 2022 | 6. desember 2023

Í svari stofnunarinnar er tekið fram að megintilgangur PISA sé …
Í svari stofnunarinnar er tekið fram að megintilgangur PISA sé að gefa heildarmynd af þekkingu og færni nemenda í þátttökulöndum við lok skólaskyldu þeirra. mbl.is/Hari

PISA-könnunin er ekki til þess fallin að veita áreiðanlegar upplýsingar um frammistöðu fámennra nemendahópa eins og þeirra sem tilheyra einstökum skólum.

PISA-könnunin er ekki til þess fallin að veita áreiðanlegar upplýsingar um frammistöðu fámennra nemendahópa eins og þeirra sem tilheyra einstökum skólum.

Þetta segir í svari Menntamálastofnunar við fyrirspurn mbl.is, þar sem spurt var af hverju einstakir skólar fengju ekki að vita niðurstöður sinna nemendahópa.

Fengu niðurstöðurnar áður

Skól­arn­ir fengu að sjá niður­stöður sín­ar árin 2012 og 2015.

Jón Pét­ur Zimsen, aðstoðarskóla­stjóri Rétt­ar­holts­skóla, segir að þar hafi þær komið að góðum notum við mótun kennslunnar.

„Við sáum bara hvar skór­inn kreppti og hvar ekki. Það sýndi sig að það bætti ár­ang­ur. Svo biðum við spennt eft­ir því að sjá okk­ar niður­stöður árið 2018, en þá var okk­ur hafnað. Ég hafði sam­band við OECD og þau sögðu að við vær­um auðvitað í frá­bærri stöðu til að nýta niður­stöðurn­ar.“

Komi niður á áreiðanleika

Í svari stofnunarinnar er tekið fram að megintilgangur PISA sé að gefa heildarmynd af þekkingu og færni nemenda í þátttökulöndum við lok skólaskyldu þeirra.

„Skipulag og tölfræðilegur grunnur könnunarinnar miðar fyrst og fremst að því að veita slíka heildarmynd, sem kemur beint niður á nákvæmni og áreiðanleika í mati á einstökum nemendum,“ segir í svarinu.

„Í stuttu máli er ástæðan sú að PISA dreifir stóru mengi verkefna á heildarúrtak nemenda í hverju landi til að ná sem best utan um sem flesta ólíka fleti á hæfni þeirra (aðferð sem kallast multiple-matrix sampling).

Þannig getur verið misjafnt hvaða prófverkefni, og af hvaða sviðum, einstakir nemendur taka í PISA, jafnvel innan sama skóla. Niðurstöður fyrir einstaka skóla geta þannig gefið ónákvæma mynd af því hvernig hæfni og geta nemenda þeirra þróast yfir tíma. Með þessari aðferð fæst hins vegar nákvæmari mynd af hæfni nemenda þátttökulanda í heild.“

Íslenskir skólar í einstakri stöðu

Fyrirspurnin var lögð fyrir stofnunina í kjölfar gagnrýni Jóns Péturs, sem segir í samtali við Morgunblaðið í dag að íslenskir skólar séu í einstakri stöðu til að leyfa niðurstöðunum að gagnast við kennslu.

Nefn­ir hann til sam­an­b­urðar að í Þýskalandi séu aðeins 4.500 nem­end­ur dregn­ir út til að taka þátt í könn­un­inni.

„Þjóðverj­ar geta ekki nýtt sér þetta eins og við. Minni rík­in eins og Lúx­em­borg og Liechten­stein – þau geta nýtt sér þetta, en við kjós­um að gera það ekki. Og það er bara póli­tísk ákvörðun. Það hef­ur eng­inn svarað fyr­ir það öðru­vísi en með því að segja að þetta sé bara próf til að mæla kerfi.“

mbl.is