Öllu starfsfólki Menntamálastofnunar sagt upp

PISA 2022 | 15. desember 2023

Öllu starfsfólki Menntamálastofnunar sagt upp

Öllu starfsfólki Menntamálastofnunar, 46 manns, var sagt upp í dag. Þetta staðfestir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri stofnunarinnar í samtali við mbl.is.

Öllu starfsfólki Menntamálastofnunar sagt upp

PISA 2022 | 15. desember 2023

Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri Menntamálastofnunar.
Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri Menntamálastofnunar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Öllu starfsfólki Menntamálastofnunar, 46 manns, var sagt upp í dag. Þetta staðfestir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri stofnunarinnar í samtali við mbl.is.

Öllu starfsfólki Menntamálastofnunar, 46 manns, var sagt upp í dag. Þetta staðfestir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri stofnunarinnar í samtali við mbl.is.

Mennta­mála­stofn­un hef­ur ekki náð að sinna stuðningi við skóla­sam­fé­lagið, eins og þekk­ist í sam­bæri­leg­um stofn­un­um í þeim lönd­um sem Ísland er gjarn­an borið sam­an við, að sögn Þórdísar Jónu.

Til stendur að stofn­a nýja þjón­ustu­stofn­un­ sem á að taka við af Menntamálastofnun á næsta ári. Hún á meðal annars að sinna stuðningi við kenn­ara, skóla­stjórn­end­ur og sveit­ar­fé­lög­in.

Gagnrýni eftir PISA-könnunina

40% fimmtán ára nem­enda á Íslandi búa ekki yfir grunn­hæfni í lesskiln­ingi, að því er kom fram í niður­stöðum PISA-könn­un­arinnar 2022 sem voru birt­ar 5. desember.

Hlut­fall nem­enda sem nær þess­ari grunn­hæfni (um 60%) lækkaði um 14 pró­sentu­stig hér á landi frá síðustu könn­un. Til sam­an­b­urðar hef­ur pró­sentu­stigið á hinum Norður­lönd­un­um lækkað um þrjú til átta pró­sentu­stig.

Þessu hefur verið mætt með mikilli gagnrýni víða, þar á meðal á skólayfirvöld, menntamálaráðuneyti og Menntamálastofnun. 

Vonast er til þess að ný Menntamálastofnun verði öflugri en fyrri stofnun til þess að sporna við þessari þróun.

mbl.is