300 skjaldbökur fundust dauðar í neti

Olive ridley-skjaldbökur verpa víða á ströndum Mexíkó.
Olive ridley-skjaldbökur verpa víða á ströndum Mexíkó. AFP

Mexíkóskir sjómenn komu nýverið að um 300 dauðum skjaldbökum í fiskineti skammt frá suðurströnd landsins. Um er að ræða skjaldbökur af tegundinni „olive ridley“ (Lepidochelys olivacea), en aðeins nokkrir dagar eru síðan 102 skjaldbökur af sömu tegund fundust dauðar skammt frá. BBC greinir frá.

Olive ridley-skjaldbökur verpa eggjum sínum á ströndum fjölmargra fylkja Mexíkó frá maí og fram í september ár hvert og eru taldar vera í mikilli útrýmingarhættu.

Ástæða dauðsfalla skjaldbakanna er óþekkt. Eins er óljóst hvort þær hafi enn verið á lífi þegar þær flæktust í netinu, eða hvort þær hafi þegar verið dauðar. Sérfræðingar segja mögulegt að skjaldbökurnar hafi drepist vegna skaðlegra þörunga, öngla eða að þær hafi kafnað vegna þess að þær voru fastar í netinu.

Mexíkó bannaði veiðar á sjávarskjaldbökum árið 1990 og hörð refsing bíður hvers þess sem drepur þær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert