Tugir þúsunda mótmæltu í Hong Kong

Mótmælendur fyrir utan þinghúsið í Hong Kong. Þeir létu ekki …
Mótmælendur fyrir utan þinghúsið í Hong Kong. Þeir létu ekki girðingar lögreglunnar stöðva sig. AFP

Tugir þúsunda mótmælenda í Hong Kong héldu áfram mótmælum sínum gegn áformum stjórnvalda um að heimila framsal brotamanna frá borginni til meginlands Kína.

Svartklæddir mótmælendur, flestir ungt fólk, umkringdu skrifstofur stjórnvalda og stöðvuðu í leiðinni umferðina. Kröfðust þeir þess að stjórnvöld hætti við áformin. Ráðamenn í þinghúsi borgarinnar greindu frá því í morgun að annarri umfjöllun um frumvarpið hafi verið frestað.

Lögreglan sprautaði vatni á mótmælendur og piparúða fyrir utan þinghúsið og hélt uppi skiltum þar sem mótmælendur voru varaðir við.  

AFP
AFP
Köngulóarmaðurinn var á meðal mótmælenda.
Köngulóarmaðurinn var á meðal mótmælenda. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert