Hætta á lyfjaskorti vegna COVID-19

Það gæti farið að bera á lyfjaskorti vegna kórónuveirunnar en …
Það gæti farið að bera á lyfjaskorti vegna kórónuveirunnar en mikið hefur hægt á framleiðslu í Kína vegna faraldurins. AFP

Ríki í Evrópu, Bandaríkin og Indland hafa lýst yfir að lyfjaskortur geti verið yfirvofandi kórónuveirunnar COVID-19.

Um 80 prósent af öllu því hráefni sem notað er til lyfjaframleiðslu á Indlandi kemur frá Kína, en mikið hefur dregið úr framleiðslu og vöruflæði eftir að veiran kom upp og gengið hefur vel á lyfjabirgðirnar. Telegraph greinir frá.

Þetta hefur orðið til þess að algeng lyf hafa hækkað mikið í verði þar í landi. Venjuleg verkjalyf eins og paracetamol hefur til dæmis hækkað um 40 prósent í verði síðustu vikur og algeng sýklalyf um allt að 70 prósent.

Yfir 70 þúsund hafa smitast af veirunni, langflestir í Hubei héraði í Kína, þar sem hún á upptök sín í borginni Wuhan. Tæplega 1.900 eru látnir. Veiran hefur lamað Kínverskt samfélag, sérstaklega þau svæði þar sem borgum hefur verið lokað og fólk verið í einangrun vikum saman. Þá hafa fjölmörg fyrirtæki lagt venjulega framleiðslu sína til hliðar og tekið til við að framleiða andlitsgrímur eftir tilmæli frá stjórnvöldum, en farið var að bera á skorti á þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert