Ungmenni slösuðust vegna flugelda

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Tveir voru fluttir með sjúkabifreið á slysadeild Landspítalans á tíunda tímanum í kvöld eftir að þeir höfðu orðið fyrir meiðslum vegna flugelda í hlíðum Esjunnar.

Tilkynning barst um slysið og var upphaflega talið að einhver hefði misst meðvitund en fimm ungmenni voru á staðnum. Þrjú komu sér sjálf til Reykjavíkur á einkabifreið.

Talið er að hinir slösuðu hafi fengið í sig glæringar og smá högg samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Ekki lágu fyrir upplýsingar um það hvað ungmennin voru að aðhafast í hlíðum Esjunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert