Fimm áskrifendur til San Francisco

Dregið var í áskrifendaleik Morgunblaðsins og WOW air í dag.
Dregið var í áskrifendaleik Morgunblaðsins og WOW air í dag. mbl.is/RAX

Fimm heppnir áskrifendur Morgunblaðsins unnu ferð fyrir tvo til San Francisco í dag. Dregið var út með rafrænum hætti í Hádegismóum og sá Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, um útdráttinn. Vinningshafar voru: Tómas Guðbjartsson, Örn Arnarson, Gunnar H. Magnússon, Bjarni G. Stefánsson og Bárður Marteinn Níelsson. Óskar Morgunblaðið og mbl.is þeim innilega til hamingju.

Áskrifendur til 10 borga með WOW

Á næstu vikum eiga áskrifendur Morgunblaðsins möguleika á að hreppa ferð til einhverrar af níu borgum sem eftir eru í áskrifendaleik Morgunblaðsins og WOW Air. Fjallað verður um hverja borg fyrir sig í Morgunblaðinu á hverjum fimmtudegi meðan á leiknum stendur. San Francisco var fyrsta borgin og í framhaldinu koma Stokkhólmur, Cleveland, Barcelona, Tel Aviv, Detroit, Cincinnati, St. Louis, Dublin og Dallas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert