Málið rannsakað af lögreglunni

mbl.is/Hjörtur

Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir í samtali við mbl.is að fangi á Kvíabryggju hafi látist í gær en segist að öðru leyti ekki geta tjáð sig um málið.

Páll var á leið vestur að Kvíabryggju þegar mbl.is náði tali af honum en hann segir að viðbragðsáætlun hafi verið virkjuð í kjölfar atburðarins sem unnið væri eftir.

Málið verður rannsakað af lögreglunni.

Fréttablaðið greindi frá málinu í gærkvöldi en í frétt blaðsins er því haldið fram að fanginn hafi svipt sig lífi og lík hans fundist í fjárhúsinu við Kvíabryggju.

Uppfært kl. 9:18:

Lögreglan á Vesturlandi fer með rannsókn málsins. Samkvæmt upplýsingum frá henni er ekki talið á þessu stigi að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert