Björgunarskip er á leið til Þórshafnar á Langanesi með bát í togi sem tók niðri við Rauðanes í morgun. Ekkert amar að skipverjum og engin hætta á ferðum, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.
Ekki var um strand að ræða og gekk vel að koma togi í bátinn.