Snjóaði í Hlíðarfjalli

Úr vefmyndavél Hlíðarfjalls

Snjóað hefur í Hlíðarfjall og samkvæmt upplýsingum frá lögreglumönnum á vakt á Akureyri nær snjórinn niður að hótelinu. Sömu sögu er að segja af Súlum en þar hefur einnig snjóað.

Sjá betur hér

Miðað við veðurspá leysir snjó væntanlega fljótlega því spáð er suðvestlægri átt í dag og bjartviðri á Norðausturlandi og Austfjörðum. Hægari suðlæg átt á morgun og víða bjart með köflum en áfram stöku skúrir við vesturströndina. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast austanlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert