Krefjast afturköllunar uppsagna

Er það krafa ASÍ að fyrirtækið virði réttindi flugfreyja og …
Er það krafa ASÍ að fyrirtækið virði réttindi flugfreyja og flugþjóna, þ.m.t. kjarasamninga sem gerðir hafa verið og bókanir með þeim. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Miðstjórn ASÍ harmar þá vegferð sem Icelandair er á og krefst þess að stjórnendur félagsins afturkalli nú þegar uppsagnir á annað hundrað flugfreyja og flugþjóna, sem og á þriðja tugs starfsmanna hér á landi. „Allt annað er óásættanlegt,“ segir í ályktun sem ASÍ sendi frá sér í dag.

„Með ákvörðun Icelandair að segja upp á annað hundrað flugfreyjum og flugþjónum eru þeim settir afarkostir, annaðhvort taki þau fullt starf eða missi vinnuna. Þessi ákvörðun félagsins er í andstöðu við sátt og sameiginlegan skilning stéttarfélags flugfreyja og flugþjóna sem staðfestur er með sérstakri bókun með kjarasamningi aðila um þetta efni.“

Er það krafa ASÍ að fyrirtækið virði réttindi flugfreyja og flugþjóna, þ.m.t. kjarasamninga sem gerðir hafa verið og bókanir með þeim.

„Til að bíta höfuðið af skömminni hefur Icelandair sagt upp á þriðja tug starfsmanna hér á landi og ákveðið að útvista verkefnum til Eystrasaltsríkja þar sem laun og önnur starfskjör eru allt önnur og verri en hér gilda. Minna þær aðfarir óþægilega á það [sic] viðskiptahætti sem Primera Air ástundaði í fullkominni óþökk norrænnar verkalýðshreyfingar. Enda reyndist það feigðarflan.“

Bent er á að Icelandair sé eitt af stærstu fyrirtækjum landsins og hafi notið ákveðinnar virðingar vegna starfsmannastefnu sinnar. Sá harkalegi stjórnunarstíl sem fyrirtækið sýni nú eigi ekkert skylt við hana. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert