Fjárfest fyrir 20 milljarða

Mikil uppbygging hefur átt sér stað í miðborg Reykjavíkur undanfarna …
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í miðborg Reykjavíkur undanfarna mánuði og ár. mbl.is/​Hari

Aldrei hefur Reykjavík lagt jafn mikið í uppbyggingu innviða og þjónustu eins og í ár, en fjárfest verður fyrir 20 milljarða króna, að því er Reykjavíkurborg greinir frá.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnti fjárfestingar Reykjavíkurborgar á árlegu Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins í dag.

Fram kemur á vef borgarinnar, að uppbygging innviða sé að stærstum hluta annars vegar fasteignir borgarinnar ásamt búnaði í þær og hins vegar gatnagerð og uppbygging í umhverfi íbúa.

mbl.is/​Hari

Haft er eftir Degi, að umfangsmiklar framkvæmdir séu í gangi hjá borginni.

„Þar er fjárfestingin í íþróttamannvirkjum stærst að þessu sinni, en við erum með sérstaka áherslu á austurborgina með sundlaug í Úlfarsárdal og knatthús í Breiðholti sem stærstu verkefni. Við ætlum að reisa nýja hverfisbækistöð í Örfirisey og fara í viðhald á Borgarbókasafninu. Í velferðinni erum við að fjárfesta í smáhýsum fyrir skjólstæðinga velferðarsviðs og hjúkrunarheimili við Sléttuveg er að rísa. Þá erum við að opna nýjar leikskóladeildir og  taka í gegn skólalóðir. Svo setjum við 450 milljónir í lagningu hjólastíga, byrjum að hanna borgarlínu og meira en 1.200 milljónir króna í að malbika götur. Fjárfesting borgarinnar í innviðum af ýmsu tagi hafa aldrei verið umfangsmeiri,“ er haft eftir Degi. 

Þá kemur fram, að í ár verði fjárfest í fasteignum og stofnbúnaði fyrir 9 milljarða og þar af fari rúmir 3,4 milljarðar til íþrótta- og tómstundamála, en íþróttamiðstöð í Úlfarsárdal og íþróttamannvirki ÍR í Mjódd taki þar mest til sín. Framlög til skóla- og frístundamála nema tæpum 2,4 milljörðum og fer stór hluti til nýrra leikskóladeilda, auk þess sem settur er hálfur milljarður til endurgerðar leikskóla- og skólalóða.

mbl.is/Eggert

Enn fremur segir, að til gatna- og umhverfisframkvæmda í ár fari einnig um 9 milljarðar og þar af séu nærri 2,8 milljarðar til uppbyggingar í nýjum hverfum s.s. Vogabyggð, Gufunes, Hlíðarenda, Úlfarsárdal og Vesturbugt. Gatnagerð í miðborginni verði einnig fyrirferðarmikil en haldið verður áfram með endurgerð Hverfisgötu, Frakkastígs, Tryggvagötu og aðrar framkvæmdir á Austurbakka og Austurhöfn  s.s. Steinbryggju. Samanlagt eru framlög til framkvæmda í miðborginni 1,3 milljarðar. Auk þessarar miklu endurgerðar á götum verður haldið áfram með átak í malbikun gatna og verður rúmum 1,2 milljörðum króna varið í það verkefni. Margvísleg umhverfis- og aðgengismál eru á listanum s.s. LED-væðing götulýsingar fyrir 440 milljónir og gerð göngu- og hjólastíga fyrir 450 milljónir. Borgarlínan er í ár á undirbúningsstigi en 200 milljónum verður ráðstafað til hennar.

Til annarra framkvæmda fara síðan 2,2 milljarðar króna og þar af er um milljarður í hugbúnað og tölvubúnað Reykjavíkurborgar. Þá hefur 450 milljónum króna verið ráðstafað í íbúalýðræðisverkefnið Betri hverfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert