Vilja skattaafslátt til þriðja geirans

Björgunarsveitir öðlast rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts sem fellur til vegna …
Björgunarsveitir öðlast rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts sem fellur til vegna framkvæmda og mannvirkjagerðar verði frumvarpið að lögum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hinn svonefndi þriðji geiri öðlast rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts sem fellur til vegna mannvirkjagerðar og annarra framkvæmda verði frumvarp þingmanna úr bæði ríkisstjórnarflokkum og stjórnarandstöðu að lögum. 

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en því er ætlað að hvetja félagasamtök til almannaheilla, s.s. íþróttafélög og björgunarsveitir, til að efla starfsemi sína eða bæta aðstöðu. 

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Ljósmynd/Bragi Þór Jósefsson

Með endurgreiðslukerfinu veitir ríkissjóður félagasamtökum innan þriðja geirans fjárhagslegan stuðning við uppbyggingu aðstöðu með endurgreiðslu virðisaukaskatts sem fallið hefur til vegna mannvirkjagerðar og annarra framkvæmda en flest þeirra félaga sem starfa að almannaheillum eru utan virðisaukaskattkerfisins og eiga því ekki möguleika á að fá endurgreiðslu innskatts vegna framkvæmda, að því er segir í greinargerð með frumvarpinu.

Flutningsmenn eru auk Jóns: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Njáll Trausti Friðbertsson, Óli Björn Kárason, Páll Magnússon, Vilhjálmur Árnason, Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðjón S. Brjánsson, Guðmundur Andri Thorsson, Ólafur Ísleifsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Willum Þór Þórsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert