Fjármálaráðherra fari með rangt mál

Drífa Snædal er formaður Alþýðusambands Íslands, sem segir Bjarna Benediktsson …
Drífa Snædal er formaður Alþýðusambands Íslands, sem segir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra hafa farið með rangt mál varðandi tillögur sambandsins í skattamálum. mbl.is/Valli

„Fjármálaráðherra hefur haldið því fram í gagnrýni sinni á tillögur ASÍ um breytingar á skattkerfinu að þær muni leiða til þess að skattbyrði hækki á meðaltekjur og jaðarskattar aukist. Þessi ummæli ráðherrans benda til þess að hann hafi ekki kynnt sér tillögurnar nægilega vel og því full ástæða til að leiðrétta þennan misskilning,“ segir í fréttatilkynningu frá ASÍ, sem birtist á vef sambandsins í gær.

ASÍ segir það rangt hjá fjármálaráðherra að tillögur sambandsins í skattamálum muni leiða til hækkunar á skattbyrði meðaltekjufólks, heldur geri þær þvert á móti ráð fyrir að skattbyrði 95% vinnandi fólks lækki eða haldist óbreytt, en að tekjuhæstu 5% landsmanna muni greiða hærri skatta en nú. Samtökin benda einnig á að skattbyrði þeirra tekjuhæstu sé lægri á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum.

ASÍ lagði fram tillögur sínar í skattamálum á dögunum, en sambandið hefur árum saman gagnrýnt þróun skatt- og tilfærslukerfanna í íslensku samfélagi og segja þær breytingar sem þessum kerfum hafi verið gerðar, hafi ekki miðað að því að bæta stöðu hinna tekjulægri.

„Í skýrslu Hagdeildar sem gefin var út haustið 2017 var skattbyrði launafólks rakin frá árinu 1998. Niðurstaða skýrslunnar var aukin skattbyrði launafólks á síðustu áratugum og hefur þróunin komið verst niður á tekjulægri hópum sökum þróunar skattkerfis og veikingar tilfærslukerfanna,“ segir á vef ASÍ.

Tillögur ASÍ miða að því að leiðrétta þessa þróun með neðangreindum aðgerðum:

  • Jöfnunarhlutverk tekjuskattkerfisins verði styrkt.
    • Með fjölgun þrepa verður hægt að hækka skattleysismörk og draga úr jaðarsköttum hinna tekjulægri.
    • Hátekjuþrep væri miðað við ~5% tekjuhæstu (~Yfir 1,1 milljón á mánuði).
    • Breytingarnar myndu auka ráðstöfunartekjur mest hjá einstaklingum sem hafa laun undir 500 þúsund á mánuði og halda skattbyrði óbreyttri á efri millitekjur.
    • Breytingar hefðu jákvæð eða hlutlaus áhrif á 95% einstaklinga á vinnumarkaði.
  • Barnabótakerfið verði eflt til muna þannig að það styðji við meginþorra barnafólks en ekki einungis hinum allra tekjulægstu.
    • Dregið verði verulega úr tekjuskerðingum og tekjuskerðingamörk fylgi launaþróun.
    • Stuðningur nýtist fleirum en hinum allra tekjulægstu enda glíma ungar barnafjölskyldur í auknum mæli við háa kostnað við daggæslu, leiksskólagjöld og frístund.
  • Endurreisa þarf húsnæðisstuðningskerfin.
    • Húsnæðiskostnaður og þá sérstaklega kostnaður leigjenda hefur dregið úr kjarabótum tekjulágra á undanförnum árum.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert