Stoðdeild fyrir börn hælisleitenda

Háaleitisskóli í Álftamýri.
Háaleitisskóli í Álftamýri. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt tillögu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs um stofnun stoðdeildar vegna móttöku barna í leit að alþjóðlegri vernd og þurfa sértækan stuðning við að hefja nám í grunnskólum Reykjavíkurborgar.

Fram kemur á vef borgarinnar, að starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar hafði áður skilað tillögum um bætta móttöku og nú hafi verið unnið enn frekar í því hvað hentar þessum hópi nemenda best. 

Þá segir, að þróað verði starf í stoðdeild fyrir börn í 3. – 10. bekk sem þurfi sértækan stuðning við að hefja nám í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Í þessum hópi verði fyrst og fremst börn umsækjenda um alþjóðlega vernd og í einhverjum tilfellum börn sem hafa mjög rofna skólagöngu erlendis að baki.

Deildin verður starfrækt við Háaleitisskóla – Álftamýri frá og með næsta skólaári.

„Nemendur sem munu sækja stoðdeild hafa dreifst á 12 skóla víðsvegar um borgina og er talin þörf á aukinni þjónustu fyrir þennan viðkvæma hóp. Vegna sérstöðu þessa nemendahóps er mikilvægt að hlúa vel að félagslegri og námslegri stöðu þeirra þar sem gera má ráð fyrir að meiri hluti barnanna muni staldra stutt við í íslensku samfélagi.

Rík áhersla er lögð á að nemendur verði tímabundið í stoðdeild á meðan unnið er að mati á námslegri stöðu þeirra og hlúð að félagslegum og sálrænum þáttum þeirra eftir bestu getu. Nemendur munu jafnframt taka þátt í starfi við frístundamiðstöðina Kringlumýri og öðru íþrótta- og frístundastarfi í hverfinu.

Búseta nemenda sem sækja munu nám í stoðdeildinni er víðsvegar í Reykjavík og verða samgöngur tryggðar fyrir þau í og úr skóla meðan þau stunda nám í stoðdeildinni,“ segir í tilkynningunni.

Nánar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert