Byrjað að bóka jólaferðir

Einhverjir Íslendingar eru farnir að huga að jólaferðinni í ár.
Einhverjir Íslendingar eru farnir að huga að jólaferðinni í ár. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsmenn eru þegar farnir að bóka aðventuferðir fyrir næstu jól og áramót og hófust bókanir hjá nokkrum ferðaskrifstofum í apríl.

„Það er dásamlegt að koma til Berlínar þegar jólaljósin ljóma og borgin skartar sínum fegurstu jólaskreytingum,“ segir í nýbirtri auglýsingu um aðventuferð hjá ferðaskrifstofunni Úrval-Útsýn.

Bókanir í aðventuferðir hefjast almennt hjá ferðaskrifstofum í apríl og jafnvel í mars en eldra fólk og stærri fjölskyldur bóka ferðir almennt í fyrra fallinu. Ferðir til áfangastaða á borð við Berlín, Helsinki, Búdapest, Brussel og Vínarborg eru komnar í sölu hjá ferðaskrifstofum landsins en Elísabet Hagalín, eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical, segir í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag, að landsmenn hugi fyrr að aðventu- og vetrarferðum nú en áður fyrr.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert