Meirihluti hjúkrunarfræðinga á vakt karlkyns

Hjúkrunarfræðingarnir Patrick Roque Rosel Martin, Jay Balane Ligan, Þorstein Jónsson, …
Hjúkrunarfræðingarnir Patrick Roque Rosel Martin, Jay Balane Ligan, Þorstein Jónsson, Árni Már Haraldsson og Norman King Surban Rojas voru allir á vakt á gjölrgæsludeild Landspítalans aðfaranótt mánudags og verður það að teljast óvenjulegt að meirihluti hjúkrunarfræðinga á vakt sé karlkyns. Ljósmynd/Landspítalinn

Sú óvenjulega staða kom upp á næturvakt á gjörgæslunni á Landspítalanum á Hringbraut aðfaranótt mánudags að meirihluti hjúkrunarfræðinga á vakt voru karlmenn.

Frá þessum óvenjulegu en skemmtilegu tíðindum er greint á vef Landspítalans. Hjúkrunarfræðingar á Landspítala er enn að stórum hluta konur en karlmönnum hefur fjölgað. Líklega þó varla meira hlutfallslega á spítalanum en á gjörgæslunni við Hringbraut, þar sem karlmenn skipa 14% starfa hjúkrunarfræðinga á deildinni.

Þessi vakt á sunnudagskvöld var samt af tilviljun sérstök vegna þess að karlar mönnuðu hana nær eingöngu. Það vantar einungis einn úr hópi karlkyns hjúkrunarfræðinga á deildinni, Orra Jökulsson og Sölva Sveinsson sem er að læra hjúkrun og er á þriðja ári. Á gjörgæslunni við Hringbraut eru 6 karlkyns hjúkrunarfræðingar  og 7 þegar Sölvi hjúkrunarnemi er tekinn með, en hann á eitt ár eftir af náminu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert