Framkvæmdir byrja stundum of snemma

Ekki má byrja hávaðasamar framkvæmdir fyrr en eftir 10 á …
Ekki má byrja hávaðasamar framkvæmdir fyrr en eftir 10 á frídögum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Borið hefur á því upp á síðkastið að góða veðrið sé nýtt og vinna við hávaðasamar framkvæmdir fari af stað full snemma á morgnana á frídögum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Bent er á að samkvæmt reglugerð um hávaða í og við íbúðahverfi þá megi ekki byrja slíkar framkvæmdir fyrr en klukkan 10 á frídögum. Þá eru sérstaklega hávaðasamar framkvæmdir bannaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert