Bernhard innkallar 1.078 bíla

Honda.
Honda. AFP

Bernhard ehf. hefur innkallað 1.078 Honda-bifreiðar af árgerðunum 2001 til 2012. Um er að ræða bíla af gerðunum Accord, Jazz, Civic, Steam og CR-V.k. Ástæða innköllunarinnar er að loftpúðar bifreiðanna gætu verið gallaðir.

Um er að ræða hluta af alþjóðlegri innköllun sem rekja má til loftpúðaframleiðandans Takata, að því er segir á vef Neytendastofu.

Þar segir enn fremur, að við innköllun sé skipt um loftpúða farþegamegin eða ökumannsmegin. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert