Bætti sig um klukkustund í ofurhlaupi

Þorbergur Ingi Jónsson við marklínu í Mont Blanc ofurhlaupi árið …
Þorbergur Ingi Jónsson við marklínu í Mont Blanc ofurhlaupi árið 2017. Ljósmynd/aðsend

Þorbergur Ingi Jónsson er komin í mark eftir rúmlega 170 kílómetra ofurhlaup í hlíðum Mont Blanc, hæsta fjalls Alp­anna. Hækkunin í hlaupinu er um 10 kílómetrar.

Þorbergur hljóp á 24 klukkustundum, 59 mínútum og 22 sekúndum og bætti sig því um klukkustund í hlaupinu en hann hljóp einnig í fyrra og þá á tæpum 26 klukkustundum. Hann lenti í 26. sæti í karlaflokki og 18. sæti í sínum aldursflokki.

Elísabet Margeirsdóttir er í landsliðinu sem keppir á HM í …
Elísabet Margeirsdóttir er í landsliðinu sem keppir á HM í utanvegahlaupum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari tekur þátt í sama hlaupi og Þorbergur og er enn á hlaupum. Hún er væntanleg í mark í kvöld.

Alls eru Mont Blanc-ofurhlaupin fjögur en hlaupið sem Þorbergur og Elísabet lögðu í er það lengsta og erfiðasta af þeim fjórum. Fleiri Íslendingar tóku þátt í styttri ofurhlaupum, þar á meðal Rannveig Oddsdóttir, sem hreppti brons í sínum aldursflokki. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert