Hrafn býðst til að gegna embætti forseta launalaust

Hrafn Jökulsson hefur verið ötull talsmaður skákarinnar hérlendis sem erlendis …
Hrafn Jökulsson hefur verið ötull talsmaður skákarinnar hérlendis sem erlendis í fjölda ára. Nú gefur hann kost á sér í embætti forseta Skáksambands Íslands, með því skilyrði að embættið verði launalaust. mbl.is/Ómar Óskarsson

Hrafn Jökulsson hefur gefið kost á sér í embætti forseta Skáksambands Íslands, en með því skilyrði þó að forseti sambandsins sitji án launa. 

Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni í kvöld og vekur hann athygli á að á undanförnum áratug hefur núverandi forseti, Gunnar Björnsson, fengið um 100 milljónir króna í laun. „Mér finnst það fullreynt, og þykir mér þó vænt um Gunna,“ skrifar Hrafn. 

Fjármunina vill Hrafn þess í stað nýta annars vegar í afrekssjóð og hins vegar í ungmennastarf. Að auki vill hann styðja við skáklíf á landsbyggðinni og meðal hópa sem helst þurfa á að halda. 

Stjórn Skáksambands Íslands er kosin á aðalfundi sambandsins og er kjörtímabil eitt ár. Síðasti aðalfundur félagsins fór fram í júní og því gæti Hrafn þurft að bíða í nokkra mánuði uns ljóst verður hvort hann njóti stuðnings í embætti formanns. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert