Allt að fimm milljarða hagræðing

Ýmsir aðilar hafa bent á að mikil hagræðing felist í …
Ýmsir aðilar hafa bent á að mikil hagræðing felist í slíkri aðgerð. Hægt væri að nýta þann ávinning til að lækka álögur á íbúa, greiða niður skuldir og þar með lækka kostnað og/eða auka þjónustu við íbúa og styrkja innviði. mbl/Arnþór Birkisson

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur látið greina möguleg hagræn áhrif þess að lögfesta ákvæði um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga við töluna 1.000. Tvær aðferðir voru notaðar við greininguna sem gáfu til kynna að svigrúm til hagræðingar við að lögfesta ákvæðið getur orðið allt að 3,6-5 milljarðar á ári. 

Samkvæmt tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga, sem mælt verður fyrir á Alþingi síðar í mánuðinum, er aðgerð sem felur í sér að sett verði að nýju ákvæði í sveitarstjórnarlög um lágmarksíbúafjölda í sveitarfélagi og að hann verði ekki miðaður við 1.000 íbúa. Nái tillagan fram að ganga er ljóst að sveitarfélögum á Íslandi mun fækka umtalsvert, en í yfir helmingi sveitarfélaga búa færri en 1.000 íbúar, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.

Fram kemur, að ýmsir aðilar hafi bent á að mikil hagræðing felist í slíkri aðgerð. „Hægt væri að nýta þann ávinning til að lækka álögur á íbúa, greiða niður skuldir og þar með lækka kostnað og/eða auka þjónustu við íbúa og styrkja innviði. Nú þegar þingsályktunartillagan verður tekin til umræðu er mikilvægt að fyrir liggi hagræn greining á áhrifum hennar, þ.e. mati á fjárhagslegum og hagrænum áhrifum þess að sveitarfélögum fækki um allt að helming,“ segir í tilkynningunni. 

Þá segir, að tvær aðferðir hafi verið notaðar til greiningar á hagrænum áhrifum tillögunnar. „Önnur aðferðin studdist við kostnaðartölur málaflokka undangenginna fimm ára og kostnaðarlíkön metin fyrir alla málaflokka, annars vegar fyrir minni sveitarfélög (999 íbúar og færri) og hins vegar stærri (1.000-4.000 íbúar). Sú aðferð gaf til kynna að svigrúm til mögulegrar hagræðingar við það að setja lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga í 1.000 getur orðið 3,6 ma.kr. á ári á sveitarstjórnarstiginu. Hin aðferðin gekk út á það að velta fyrir sér líklegum sameiningarmynstrum og meta út frá því hvaða tækifæri til hagræðingar slík endurskipulagning hefði í för með sér. Þessi aðferð skilaði mati á tækifærum til mögulegrar hagræðingar sem nemur um 5 ma.kr. á ári.“

Jafnramt segir, að ekki hafi verið gerð tilraun til að meta sérstaklega hvernig sá ávinningur eða hagræðing skiptist á milli sveitarfélaga, Jöfnunarsjóðs og ríkissjóðs, heldur hafi verið reynt að ná eins góðri námundun og unnt sé á það hvaða tækifæri til hagræðingar geta skapast innan sveitarstjórnarstigsins, óháð því hvar hún verði og hvort forsvarsmenn sveitarfélaga ná að innleysa fjármunina og nýta t.d. til að auka þjónustu við íbúa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert