Hellisheiði lokuð vegna umferðaróhapps

Frá Hellisheiði. Mynd úr safni.
Frá Hellisheiði. Mynd úr safni. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Hellisheiði er lokuð sem stendur vegna umferðaróhapps. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Vegfarendum er bent á að aka Þrengslaveg.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um minni háttar óhapp að ræða, en stórt ökutæki ók utan í vegrið.

Ekki þurfti að kalla sjúkraflutningamenn til vegna óhappsins.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert