Losun frá vegasamgöngum aukist gríðarlega

Bílar á ferðinni á höfuðborgarsvæðinu.
Bílar á ferðinni á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/​Hari

Losun gróðurhúsalofttegunda hérlendis frá vegasamgöngum hefur aukist gríðarlega á meðan heildarlosun í flestum öðrum flokkum hefur dregist saman.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun, sem vill minna á mikilvægi þess að minnka losun gróðurhúsalofttegunda með breyttum ferðamáta og sporna þannig við hnattrænni hlýnun.

Árið 2005 voru vegasamgöngur 26% af losun. Þetta hlutfall var komið upp í 34% árið 2017 og þar vega fólksbílar mest. Tölur frá 2018 liggja ekki fyrir. Á meðan losun frá vegasamgöngum hefur aukist hefur heildarlosun sem fellur á beina ábyrgð íslenskra stjórnvalda dregist saman um 5% frá árinu 2005. Ef vegasamgöngur eru fráskildar hefur heildarlosunin dregist saman um 15%.

„Á mannamáli þýðir þetta að á meðan heildarlosun í flestum öðrum flokkum hefur dregist saman hefur losun frá vegasamgöngum aukist gríðarlega," segir í tilkynningunni. 

Umhverfisstofnun heldur utan um losunarbókhald Íslands sem skilað er árlega til ESB og UNFCCC og byggjast skuldbindingar landsins í loftslagsmálum á þeim gögnum.

Bíll í hleðslu.
Bíll í hleðslu. mbl.is/Vali

„Fyrir skömmu kynntu stjórnvöld átak um stóraukinn fjölda hleðslustöðva. Miklu varðar að hraða orkuskiptum frá jarðefnaeldsneyti til umhverfisvænni samgangna, svo sem með því að nota metan, vetni og rafmagn á bíla. Staðreyndin er að svigrúm almennings til að minnka losun er hvað mest í samgöngum,“ segir einnig í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert