Ekki breytt fyrr en eftir jafnréttismat

Fyrirhuguð breyting á starfstíma byggði á tillögu stýrihóps um umbætur …
Fyrirhuguð breyting á starfstíma byggði á tillögu stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs. Ljósmynd Reykjavíkurborg

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær tillögu borgarstjóra þess efnis að gert verði ítarlegt jafnréttismat á fram kominni tillögu um breyttan starfstíma í leikskólum.

Í þeirri vinnu verði lögð áhersla á að fá fram skoðanir foreldra, sérstaklega þeirra sem eru með dvalarsamninga eftir kl. 16:30 og greina aðstæður þeirra. Þá verður leitast við að greina þann hóp foreldra sem almennt á erfitt með að mæta breyttum starfstíma, hversu stór hann sé og hvernig samansettur. Tillagan er sett fram í samráði við stýrihóp um umbætur og skipulag leikskólastarfs. Þetta kom fram í fréttatilkynningu eftir fund borgarráðs í gær. 

Jafnframt felur samþykkt borgarráðs í sér mat á því hvort grípa megi til mótvægisaðgerða vegna breytinga á starfstíma leikskóla til að vinna að auknu jafnrétti.

Að jafnréttismati loknu mun borgarráð taka tillögu um breyttan starfstíma leikskólanna til endanlegrar meðferðar og afgreiðslu.

„Meirihluti skóla- og frístundaráðs samþykkti 13. janúar að breyta [starfs]tíma leikskóla borgarinnar frá og með 1. apríl næstkomandi þannig að almennur [starfs]tími yrði frá 07.30-16.30. Með því styttist [starfs]tíminn um hálfa klukkustund en leikskólarnir hafa verið opnir til kl. 17.00. 

Fyrirhuguð breyting á [starfs]tíma byggði á tillögu stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs en í honum sitja m.a. fulltrúar leikskólastjóra og leikskólakennara. Tilefni tillögunnar er skortur á leikskólakennurum um land allt í kjölfar lengingar kennaranáms í fimm ár á sínum tíma. Markmið tillögunnar er að minnka álag á börn og starfsfólk leikskóla og standa þannig vörð um gæði leikskólastarfs sem er á heimsmælikvarða. Í skýrslu stýrihópsins kom m.a. fram að 92% leikskólabarna voru sótt fyrir kl. 16.30. 937 börn, eða 18% af heildarfjölda leikskólabarna, eru með dvalarsamning  sem lýkur eftir kl. 16.30 Um helmingur þeirra er sóttur fyrir kl. 16.30.

Í þeirri vinnu sem fram undan er verður óskað eftir umsögnum hagsmunasamtaka foreldra, s.s. Félags foreldra leikskólabarna í Reykjavík, Heimilis og skóla og hagsmunasamtaka leikskólakennara og stjórnenda,“ segir í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert