Plöntusjúkdómur í tómatarækt í Evrópu

Matvælastofnun vill vekja athygli ræktenda garðyrkjuafurða, sér í lagi þeirra …
Matvælastofnun vill vekja athygli ræktenda garðyrkjuafurða, sér í lagi þeirra er rækta tómata og papriku, á því að nýlegur plöntusjúkdómur hefur greinst í nokkrum löndum Evrópusambandsins sl. mánuði. mbl.is/Ásdís

Nýlegur plöntusjúkdómur hefur greinst í nokkrum löndum Evrópusambandsins sl. mánuði. Um er að ræða veiru af ætt tobamoveira sem nefndur er Tomato Brown Rugose Fruit Virus (ToBRFV). Matvælastofnun vill vekja athygli ræktenda garðyrkjuafurða, sér í lagi þeirra er rækta tómata og papriku, á þessu. 

Fyrstu einkenna veirunnar varð vart í Ísrael árið 2014 og var hún fyrst greind í Jórdaníu árið 2015. Á síðasta ári hefur veiran greinst í u.þ.b. 6 löndum Evrópusambandsins, nú síðast í Frakklandi og er útbreiðsla hennar á meginlandi Evrópu nokkuð hröð. Jafnframt hefur veiran greinst í Bandaríkjunum, Mexíkó og Tyrklandi.

Einkenni veirunnar eru nokkuð almenn en lýsa sér gjarnan í mari, vanvexti og lýti á ávöxtum. Einnig getur orðið vart við gular og brúnar skellur á ávöxtum. Jafnframt geta svartir og dökkbrúnir blettir myndast á stöngli og laufum plantna.

Veiran dreifist helst með snertismiti. Slík smit geta stafað af samgangi, fatnaði, verkfærum og öðru því er kemst í beina snertingu við plöntur. Óvíst er hversu vel veiran dreifist með fræi en ekki er hægt að útiloka það. Nýlegar rannsóknir benda jafnframt til þess að veiran geti dreift sér með býflugum innan ræktunarstöðvar.

Matvælastofnun vill beina því til allra sem aðkomu eiga að ræktun garðyrkjuafurða að gæta ýtrustu smitvarna við umgang í tómata- og paprikurækt. Mikilvægt er að starfsfólk, sem og aðrir, viðhafi viðeigandi aðgát, smitvarnir og takmarki samgang milli ræktunarrýma og býla eins og kostur er. Stofnunin vísar á leiðbeiningar um viðeigandi smitvarnir í gróðurhúsum.

Matvælastofnun óskar eftir því að þeir sem greini smit hér á landi upplýsi stofnunina um það eins fljótt og auðið er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert